Búningadagur

Í tilefni af Dögum myrkurs og hrekkjavöku vorum við með búningadag í Vopnafjarðarskóla 31. október.

Nemendur og starfsfólk mættu í búningum og mátti sjá margar kynjaverur á göngum skólans þennan dag.

Um morguninn hittumst við á sal og fengum okkur skreyttar bollakökur og sumir bekkir skreyttu og eða föndruðu í anda hrekkjavöku.