Fjör á grunnskólamótinu á Laugum

Í lok september fóru nemendur í 7. - 10. bekk Vopnafjarðarskóla í Framhaldsskólann á Laugum og kepptu þar við tíu aðra grunnskóla í ýmsum íþróttagreinum. Nemendur kepptu m.a. í dodgeball, körfabulta og blaki og stóðu sig mjög vel. Nemendur í 9. og 10. bekk fengu einnig kynningu á skólanum og í lokin var öllum boðið í kjúklingaborgara og á ball í matsal skólans. Vel heppnuð og skemmtileg ferð.