Á bolludaginn mega nemendur koma með bollur í nestinu og á sprengideginum er saltkjöt og baunir í matinn. Öskudagurinn verður með hefðbundnum hætti hjá okkur. Krakkarnir mæta í skólann kl. 8.30 og vonandi allir í einhverskonar búningum. Um kl. 9 er farið í íþróttahúsið þar sem kötturinn er sleginn úr tunnunni og á eftir kynna allir hvað þeir vilja vera samkvæmt búningnum. Á eftir fara krakkarnir í bæinn, heimsækja fyrirtæki og stofnanir, syngja fyrir starfsfólk og fá eitthvað gott í staðinn. Myndaðir eru hópar barna í hverjum bekk og með yngstu nemendur fara elstu nemendur og starfsfólk. Markmiðið er að enginn sé skilinn útundan og vonandi næst það.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.