Skóli hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 12:30.
Heimkeyrsla í sveitina verður kl. 12:35.
Aðeins er boðið upp á gæslu nemenda í 1.-2. bekk, sem ekki eru í skólaakstri og nauðsynlega þurfa á því að halda.
Ekki er boðið upp hafragraut eða ávexti og þurfa nemendur að hafa með sér nesti fyrir morguninn og ef þeir eru ekki í hádegismat. Mikilvægt er að nemendur komi með sitt glas eða brúsa til að drekka úr í skólanum og eins mjólk eða drykki.
Samkvæmt auglýstum reglum mega nemendur ekki vera fleiri en 20 í hópum og ekki er ætlast til að viðkomandi hópar hafi samskipti við aðra nemendur.
Hádegismatur verður á tímabilinu kl. 11:45 til kl. 12:30 og er raðað niður samkvæmt þeim hópum sem eru saman í kennslu.
Kennsla verður að mestu samkvæmt stundaskrá. Þó er ekki hefðbundin kennsla í verk- og listgreinum og íþróttakennsla fer fram utan dyra.
Ástæða er til að benda á að nemendur hafi góðan klæðnað til útiveru og hreyfingar í íþróttum utandyra.
Frímínútur verða á mismunandi tímum til að fylgja reglum um samskipti milli hópa.
Mikilvægt er að foreldrar ræði þetta mál vel og vandlega við börnin sín og vissulega er mikil áhersla lögð á umræðu og fræðslu um málið í skólanum.
Sýni nemandi einkenni sem líkjast sjúkdómseinkennum sem tengjast kórónaveirunni skal hann ekki sækja skóla og er mikilvægt að foreldrar verði í samráði við heilbrigðisyfirvöld um dvöl þeirra heima.
Ef spurningar vakna eru foreldrar endilega beðnir um að hafa samband við skólann í síma eða tölvupósti .
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.