Fimmtudaginn 21. nóvember verður opið hús í skólanum frá 14.30-16.30.
Foreldrar og aðrir gestir eru velkomnir í skólann að kynna sér starfið og skoða sýnihorn af vinnu nemenda.
Einnig verður gestum boðið upp á að skoða verkefni legóhópsins, bæði rannsóknarverkefnið og brautina.
Skólabílar keyra heim klukkan 15.30.
Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn og eiga notalega stund í skólanum okkar.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.