04.05.2017
Sundkennsla hefst næstkomandi mánudag, 15. maí.
Kennt verður vikuna 15.-19. maí. Síðan kemur hlé og kennt næst föstudaginn 26. maí.
Þá verður kennt vikuna 29. maí-2. júní og síðan aftur mánudaginn 12. júní og þriðjudaginn 13. júní fyrir 4.-8. bekk. Kennari verður Bjarney Guðrún Jónsdóttir.
Sjá töflu.
Lesa meira
05.03.2017
Hin árlega upplestrarkeppni 7. bekkjar fór fram þriðjudaginn 28. mars. Er skemmst frá því að segja nemendur stóðu sig allir með ágætum og voru greinilega búnir að undirbúa sig vel. Þá var framkoma þeirra til fyrirmyndar og góður andi í hópnum. Lásu krakkarnir texta úr sögu eftir Guðrúnu Helgadóttur, ljóð eftir Stein Steinarr og að lokum ljóð að sem þau völdu sjálf. Dómurum var vandi á höndum að velja þrjá úr hópnum til að vera fulltrúar okkar í keppni skóla á Norðaustursvæði Austurlands. Sigurvegarar voru þau Guðný Alma Haraldsdóttir og Hákon Ingi Stefánsson voru og Sara Líf Magnúsdóttir til vara.
Lesa meira